@lindaben

Linda Ben

Unknown

Instagram posts and videos uploaded by lindaben

lindaben

class="content__text" Hér höfum við dásamlega góðar vatnsdeigsbollur fylltar með klassíska eftirréttinum Tiramisu! Algjörlega fullkomnar með ljúffengum kaffibolla. Uppskriftin er unnin í samstarfi við @arna_mjolkurvorur 🤍 Fyllingin er útbúin að svipaðan hátt og þegar maður gerir ostakökur, þ.e. maður hrærir flórsykur saman við mascapone ostinn sem maður hrærir svo saman við þeyttan rjóma. Þannig engin hrá egg hér. Svo drekkir maður lady finger kexkökunum í kaffi. Maður ræður svo hvort maður sker lady finger kexkökurnar niður og blandar þeim saman við rjómann eða setur þær sér á hverja bollu fyrir sig. Það gæti verið hentugara að setja kaffidrekkt kexið á hverja bollu fyrir sig ef einhverjum langar ekki í bollu með kaffi. Þá setur maður fyllingu í bæði botninn og toppinn á bollunni og kaffikexið á milli, lokar svo bollunni og toppar með bræddu súkkulaði.

February 17, 2023

lindaben

class="content__text" Hér höfum við einstaklega góðar vatnsdeigisbollur fylltar með tvennskonar karamellusúkkulaði og karamellukurli. Uppskriftin er unnin í samstarfi við @noisiriusofficial Maður byrjar á því að bræða pralín saltkaramellufyllta súkkulaðið saman við þeyttan rjóma og fyllir bollurnar, toppar þær svo með karamellukurli og bræddu Dore karamellusúkkulaði. Ef þú elskar karamellu og súkkulaði þá er það algjörlega borðliggjandi að þú verður að smakka þessar!

February 17, 2023

lindaben

class="content__text" Það eru aðeins örfáir dagar í bolludaginn! Ert þú búin/nn að gæða þér á bollu? Þessar eru alveg svakalega góðar! Karamellu epli, rjómi og epla&kanil sulta 🤎🤎 uppskriftin er unnin í samstarfi við @isam_ehf og þú finnur hana inn í lindaben.is núna 🌸

February 16, 2023

lindaben

class="content__text" Minn valentínus í bráðum 14 ár 🤍🤍

February 15, 2023

lindaben

class="content__text" Valentínusardagurinn er á morgun og ég er með skothelda hugmynd fyrir þig til að græja í morgunmatinn til að gera smá extra ljúfa stund fyrir þig og þína 🤍 Það er hægt að útbúa þetta jarðaberja og rjómaostafyllta French toast daginn áður og láta brauðið drekkja í sig mjólkureggjablönduna yfir nótt, það mun bara skila þér meira djúsí french toast um morguninn. Passaðu bara að geyma brauðin þá í eldfastamótinu og loka því vel t.d. með plastfilmu. Svo steikiru brauðið bara um morguninn. Þessi uppskrift er því afar hentug þegar þú hefur kannski ekkert alltof mikinn tíma um morguninn. Rjómaosturinn bráðnar á pönnunni sem gerir brauðið alveg stórkostlega “djúsí” og ljúffengt! Þetta er klárlega einn af mínum allra uppáhalds spari morgunverðum og ég hef fulla trú á að hann verði þinn líka 🤍🤍 //samstarf @kronan.is

February 14, 2023

lindaben

class="content__text" Hiii 🤍

February 11, 2023

lindaben

class="content__text" Superbowl partýbakki 🏈 ætlar þú að fylgjast með? Samstarf // Ég fór í Krónuna og verslaði allskonar sniðugt tilbúið á bakkann, skar svo niður ferskt og gott grænmeti með og bar fram með gráðosta og bbq sósu. Einfalt og ótrúlega gott 👌🏻

February 11, 2023

lindaben

class="content__text" Hér höfum við alveg dásamlega góða heimalagaða aspassúpu úr ferskum aspas sem þú átt alveg örugglega eftir að elska. Barnvænn, hollur og góður matur. Uppskriftin er unnin í samstarfi við @arna_mjolkurvorur 🌿 Það er upplagt að bera súpuna fram með góðu brauði og smjöri. Súpan er einföld að gera en maður steikir fyrst lauk, aspas og hvítlauk. Bætir svo vatni og kjúlingakrafti út á og lætur malla, maukar svo súpuna. Því næst bætir maður rjómanum út á, kryddar til og lætur malla aðeins meira. Að lokum þeytir maður smá rjóma og skreytir súpuna með fersku timjan.

February 10, 2023

lindaben

class="content__text" Nýr mánuður, nýtt markmið: vera duglegri að setja myndir af fleiru en mat í feedið 🤓

February 10, 2023

lindaben

class="content__text" Matcha smoothie sem gefur manni mikla og langvarandi orku fyrir daginn 🌿 uppskriftin er unnin í samstarfi við @veraornudottir 🤍 Matcha er mulið te sem mikil ofurfæða, mjög ríkt af andoxunarefnum og inniheldur svolítið af koffeini. Það gefur mjúkt orkukikk og því upplagt að fá sér þennan smoothie á morgnanna. Drykkurinn er sætur og góður á bragðið en hann inniheldur banana, mangó og fullt af spínati. Það er mikilvægt að setja fitu og prótein í smoothie-a og því eru einnig hampfræ og hörfræ í drykknum ásamt vanillu og kókos hafrajógúrtinu frá Veru en ég elska það jógúrt í allskonar drykki. Ef þið viljið þá er líka hægt að bæta smá vanillupróteini út í drykkinn til að fá ennþá meira prótein.

February 10, 2023

lindaben

class="content__text" Mexíkósk taco pasta 🌮 Þessi réttur hljómar kannski óvenjulega en vá þetta er svo gott! Uppskriftin er unnin í samstarfi við @kronuna sem er komin upp með svo sniðuga þurrvörubari í nokkrar verslanir. Þurrvörubarinn er umhverfisvæn lausn þar sem maður getur keypt matvörur án umbúða 🌿🌍 Þessi réttur er kannski ekki fyrir þá allra hefðbundnustu en ef þér finnst gaman að prófa þig áfram með mat og langar að prófa eitthvað nýtt þá er þetta eitthvað fyrir þig 🤍

February 10, 2023

lindaben

class="content__text" Hér höfum við virkilega ljúffengt basil pestó kartöflusalat, uppskriftin er unnin í samstarfi við @isam_ehf Kartöflurnar eru smælki sem er bakað í ofni með húðinni á sem gerir þær ómótstæðilegar stökkar og ljúffengar. Áður en kartöflurnar eru bakaðar í gegn, er sneiddum blaðlauk bætt inn í ofninn og hann bakaður með kartöflunum í smástund. Þegar kartöflurnar eru bakaðar í gegn eru þær teknar út úr ofninum og klettasalati, basil pestói og radísum blandað saman við. Úkoman er alveg virkilega bragðgott meðlæti og passar vel með afar mörgum aðalréttum 🎯

February 03, 2023

Similar accounts

natgeo

284.3m followers

@natgeo
iamcardib

169.3m followers

@iamcardib
ddlovato

157.4m followers

@ddlovato
realmadrid

152.8m followers

@realmadrid
chrisbrownofficial

145.3m followers

@chrisbrownofficial
fcbarcelona

125.6m followers

@fcbarcelona
championsleague

113.4m followers

@championsleague
gal_gadot

109.3m followers

@gal_gadot
sooyaaa__

77.4m followers

@sooyaaa__
premierleague

72.7m followers

@premierleague
theweeknd

71.7m followers

@theweeknd
urvashirautela

70.3m followers

@urvashirautela

Disclaimer

The data provides is not authorized by TikTok. We are not an official partner of TikTok.

Use of materials from the resource is permitted only with a link to our resource.

Copyright © 2024 insiflow.com